Svavar Gestsson sérfræðingur í íslenska hagkerfinu

Að sjálfsögðu segir Svavar þetta, býst nokkur heilvita maður við því að sá sem samdi um þennan "hagstæða díl" mundi segja að við ráðum ekki við hann.

Það getur vel verið að með því að mergsjúga íslensku þjóðina, þá sé þetta hægt en það er þegar verið að ganga frá mörgum samsvarandi "dílum" við fleiri þjóðir og þegar lagt er saman er ég hræddur um að ekki verði möguleiki á að borga þetta allt saman.

Þetta telst kannski allt saman í lagi þar sem hlutirnir reddast að sjálfsögðu þegar ESB tekur okkur fagnandi og dreifir seðlum til okkar eins og til þeirra ESB þjóða sem eru í vandræðum nú þegar og Brussel er á fullu við að bjarga.

Það fyllir mig miklu öryggi þegar ég sé Steingrím segja frá því hversu góður samningur þetta er fyrir okkur og sést vel á honum að hann er vel barinn til hlýðni af húsbónda sínum henni Jóhönnu.

Það er ekki svipur hjá sjón að sjá til hans núna en hann er nú einu sinni sérfræðingur í fjármálum og það verður að viðurkennast að það er gott að vera ráðherra þó í kjölturakka formi sé.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tóti Sigfriðs

Það verður því miður að viðurkennast að fréttin við þessa færslu hvarf af síðum moggans

Tóti Sigfriðs, 8.6.2009 kl. 07:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tóti Sigfriðs

Þórður G. Sigfriðsson

Tóti Sigfriðs
Tóti Sigfriðs
Bara einn sem vill stundum láta í sér heyra

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband